Bilun kom upp í vélbúnaði Herjólfs í fyrrakvöld sem hefur áhrif á aðra skrúfu skipsins. Unnið er að því að meta umfang bilunarinnar og finna lausn á vandanum.
Samkvæmt tilkynningu frá Herjólfi í gær siglir ferjan nú á takmörkuðu afli. Vegna þess lengist siglingatíminn til Þorlákshafnar og er hann að minnsta kosti þrjár og hálf klukkustund.
Sérfræðingur frá Noregi er væntanlegur til landsins á morgun til að meta stöðuna nánar.
„Við gerum okkar besta til að halda siglingum samkvæmt áætlun, eins og aðstæður leyfa,“ segir Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs, í samtali við Eyjafréttir.
Að sögn Ólafs Jóhanns verða frekari upplýsingar veittar þegar niðurstaða liggur fyrir að loknu mati sérfræðingsins.