Ég eins og margir aðrir hef verið dálítið gagnrýnin á kvótakerfið og þá einkum varðandi veðsetningu og hvernig útgerðarmenn hafa getað selt og leigt fyrir himinháar upphæðir. Það var því forvitnilegt að hlusta í fyrrakvöldi á Binna í Vinnslustöðinni ræða um fyrningaleiðina, sem Samfylkingin hefur boðað. Binni dró upp mjög skýra mynd af því hvernig fyrningaleiðin myndi leika útgerðina og fiskvinnsluna kæmi hún til framkvæmda.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst