Björgunarbáturinn Þór í Vestmannaeyjum var kallaður út um klukkan hálf tíu í kvöld vegna togara sem var vélarvana við Skarðsfjöru og rak í átt að landi. Tíu manna áhöfn er um borð og er óttast að togarinn hafi fengið eitthvað í skrúfuna. Björgunarbátur frá Höfn í Hornafirði var einnig kallaður út, sem og björgunarsveitir í nágrenninu og þyrlur Landhelgisgæslunnar.