Breki VE og Páll Pálsson ÍS komnir af hættusvæði
Togaratvíburarnir Breki og Páll Pálsson komust í gær af hættusvæði sjórána í sundinu milli Sómalíu og Jemens. Siglingin um svæðið var tíðindalaus með öllu og mannskapnum létti mjög þegar komið var inn á Rauðahafið. Hermennirnir þrír, sem komu í Breka á Sri Lanka, fara frá borði á morgun og taka með sér vopnasafnið sitt. �?eir þurftu blessunarlega aldrei að hleypa af skoti til varnar skipi og áhöfn nema í æfingaskyni.
Hermennirnir hafa bækistöð í pramma á Rauðahafi og bíða þar eftir næsta verkefni. �?á gæta þeir öryggis um borð í einhverju skipi sem er á suðurleið um Súesskurð og Rauðahaf. �?annig er lífið hjá köppunum.
�??Við erum mjög lukkulegir að hafa náð þessum áfanga og teljum nú niður á lokakaflanum. Að baki eru 6.400 sjómílur frá Kína og núna eru nákvæmlega 4.878 sjómílur heim til Vestmannaeyja!�?? sagði Bergur Guðnason, stýrimaður á Breka, glaðbeittur á vaktinni núna um hádegisbil að íslenskum tíma. �?á var blessuð blíðan á Rauðahafi líkt og fyrri daginn, blankalogn og 35 stiga lofthiti. Sjávarhiti 28 gráður.
�??Við höfum tilkynnt komu okkar að Súesskurði að morgni 19. apríl að staðartíma og stillum okkur af þannig af að það standist. Hægjum heldur á okkur því við erum ögn á undan áætlun.
Hermennirnir eru hættu að standa vaktir um hádegi. �?eir höfðu orð á því að það hefði verið óvenjulega rólegt í kringum okkur á leiðinni. Í sundinu þar sem þrengst er hefur oft verið krökkt af fiskibátum og sjóræningjar þar gjarnan innan um að sæta lagi til árása á skip. Nú sást þarna ekki einn einasti bátur. Allt með eins kyrrum kjörum og hugsast gat.
Eitt olíuskip hefur fylgt Breka og Páli um hættusvæðið og önnur skip voru skammt á undan okkur. Herskip sáum við aldrei en vitum að þau eru ekki fjarri siglingaleiðinni, við öllu búin.
�?etta gengur ljómandi vel hjá okkur og vaxandi tilhlökkun að koma heim!�?? www.vsv.is greindi frá.

Nýjustu fréttir

Gular viðvaranir allvíða – Suðaustanhríð á Suðurlandi
Andri verður ekkert með í einvíginu gegn KA
Fékk plássið þegar auminginn úr Reykjavík gafst upp
Minnisvarði um botnlausa sýndarþörf Eyjamanna brátt vígður
Listaverk Ólafs Elíassonar komið á sinn stað
Hingað og þangað um Heimaey
Ágúst Þór stýrir brekkusöngnum
Skákmeistarinn krýndur á sunnudag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.