Breki VE og Páll Pálsson ÍS nefndir sem fyrirmyndarskip í Hörpu

Eldsneytisnotkun með tilheyrandi afleiðingum fyrir umhverfi og andrúmsloft bara eykst og eykst á Íslandi, NEMA í sjávarútvegi. Þar hefur hún dregist saman um 43% frá 1990 til 2016. Þetta kom fram á Sjávarútvegsráðstefnunni 2018 og í því samhengi brá fyrirlesari upp mynd af Breka VE fyrir að „veiða á við tvo en eyða olíu á við einn“!

Benedikt Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Samtaka fyrirtækja í sjávarútveg, flutti erindi í málstofu um umhverfismál sjávarútvegsins á Sjávarútvegsráðstefnunni í Hörpu í dag. Hann brá upp tölum og upplýsingum sem sýndu ljóslega að sjávarútvegur landsmanna er í algjörri sérstöðu á Íslandi. Því er þannig spáð að eldsneytisnotkun í greininni dragist saman um 134.000 tonn á ári frá 1990 til 2030. Það jafngildir samdrætti upp á 54%!

Stjórnmálamenn og skoðanahönnuðir í fjölmiðlakerfinu, berja sér gjarnan á brjóst fyrir að vera miklir umhverfissinnar og náttúrunnar menn í hvívetna, en passa vel hafa ekki hátt um forystu sjávarútvegsins í því að draga úr eldsneytisnotkun svo um munar – á borði en ekki bara í orði! Það má nefnilega helst ekki segja neitt jákvætt um atvinnugreinina og þess vegna er heillaráð að þegja, þykjast hafa gleymt eða ekkert hafa heyrt um málið.

Af vef Vinnslustöðvarinnar

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.