Nýir togarar Hraðfrystihússins Gunnvarar í Hnífsdal og Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum verða sjósettir í skipasmíðastöðinni í Rongcheng í Kína á morgun.
Skipin eru smíðuð samhliða og hafa þegar fengið nöfnin Páll Pálsson ÍS og Breki VE. Skipin eru smíðuð eftir íslenskri hönnun og verða afhent nýjum eigendum í sumar.
Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri HG, segir að mikil breyting verði með tilkomu nýja skipsins, en togarinn Páll Pálsson verður tekinn úr rekstri. Hann var smíðaður í Japan fyrir Hraðfrystihúsið í Hnífsdal og kom til landsins 1973. Nýju skipin eru 50,7 metrar að lengd og 12,8 metra breið. Vegna nýstárlegrar hönnunar á skrokkum skipanna og mun stærri skrúfu heldur en nú tíðkast á þessari stærð skipa er áætlað að þau hafi um 60% meiri veiðigetu en þau skip sem þau leysa af hólmi án þess að eyða meiri olíu. �?etta birtist á mbl.is í morgun.