Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu og engin alvarleg mál sem upp komu. Eitthvað var þó um pústra í kringum öldurhús bæjarins um helgina en engar kærur liggja fyrir eins og er. Eitt umferðaróhapp var tilkynnt lögreglu í liðinni viku en um var að ræða árekstur tveggja bifreiða á gatnamótum Ásavegar og Helgafellsbrautar. Engin slys urðu á fólki en bifreiðarnar eru eitthvað skemmdar.