Karlalið ÍBV vann dramatískan sigur á Haukum í 17. umferð Olís deildar karla á Ásvöllum í dag.
Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en Eyjamenn náðu tveggja marka forystu eftir átta mínútna leik. Haukar jöfnuðu leikinn í 6-6 en það sem eftir lifði hálfleiks voru Eyjamenn með forystuna. Mest náðu þeir þriggja marka forskoti, 8-11. Haukar minnkuðu muninn í eitt mark en Eyjamenn leiddu í hálfleik, 11-13.
Haukar jöfnuðu leikinn í 13-13 snemma í síðari hálfleik. Eyjamenn tóku aftur forystuna og komust þremur mörkum yfir 15-18. Lokakafli leiksins var afar spennandi og var munurinn á liðunum aðeins eitt mark. Haukar tóku forystuna þegar aðeins fjórar mínútur voru til leiksloka og var staðan 28-27. Eyjamenn jöfnuðu leikinn og Petar Jokanovic náði að verja þegar aðeins tíu sekúndur voru eftir af leiknum. Eyjamenn tóku leikhlé og var það Dagur Arnarsson sem skoraði sigurmark Eyjamanna. Lokatölur leiksins, 28-29.
Eftir 17 leiki eru Eyjamenn í 6. sæti með 21 stig. Haukar eru í 2. sæti með 24 stig.
Markahæstur í leiknum var Dagur Arnarsson, leikmaður ÍBV, með sjö mörk, ásamt Skarphéðni Ívari Einarssyni, leikmanni Hauka. Petar Jokanovic var frábær í liði ÍBV og varði 19 skot.
Mörk ÍBV: Dagur Arnarsson 7 mörk, Hákon Daði Styrmisson 7, Sveinn José Rivera 6, Daníel Þór Ingason 3, Andri Erlingsson 2, Kristófer Ísak Bárðarson 2, Elís Þór Aðalsteinsson 1, Ívar Bessi Viðarsson 1.
Eyjamenn taka á móti Aftureldingu, fimmtudaginn 12. Febrúar kl 19:30.