Markvörður ÍBV, Eyjakonan Dröfn Haraldsdóttir hefur verið valin í íslenska landsliðið. Florentina Stanciu, fyrrum markvörður ÍBV og núverandi markvörður Stjörnunnar, þurfti að draga sig út úr hópnum og kemur Dröfn í hennar stað. Íslenska liðið mætir Frökkum heima og heiman í undankeppni EM síðar í þessum mánuði. Leikið verður í Laugardalshöll miðvikudaginn 26. mars og ytra laugardaginn 29. mars.
Dröfn hefur verið viðloðandi landsliðið undanfarin ár og fór m.a. með liðinu á HM í Brasilíu.