Stjórnmál, hvað fær fólk til þess að taka þátt í stjórnmálum? Það er von að margir velti því fyrir sér þessa dagana hvað fær fólk til þess að taka þátt í stjórnmálum eins og staðan á stjórnarheimilinu og hinu háa alþingi er um þessar mundir. Þar virðist hver höndin vera upp á móti annarri og ekki vinnandi vegur að fá niðurstöður í nokkurt mál, mál sem brenna á þjóðinni eins og t.d. stjórnarskrármálið. Hvernig má það vera eftir allt sem á undan er gengið að alþingismenn þjóðarinnar geti ekki með nokkru móti unnið saman að farsælum lausnum fyrir land og þjóð?