Framkvæmdir í Landeyjahöfn ganga vel en um Páskana var byrjað að dýpka höfnina. Það er dýpkunarskipið Perla, sem er í eigu fyrirtækisins Björgun hf., sem vinnur verkið en bæði þarf að dýpka innsiglingarrennuna og sjálft hafnarsvæðið. Óskar Elías Óskarsson var einmitt að skoða aðstæður í höfninni þegar dýpkun hófst um helgina og sendi hann Eyjafréttum myndir frá heimsókninni.