Það var í mörg horn að líta hjá lögreglu í sl. viku og um Páskahelgina, enda töluvert um skemmtanir á skemmtistöðum bæjarins. Nokkuð var um pústra á og við skemmtistaði og voru tvær líkamsárásir kærðar til lögreglu. Þá var eitthvað um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum auk þess sem aðstoða þurfti fólk vegna hinna ýmsu atvika sem upp komu, er tengdust ölvunarástandi þess.