Aðalfundur Eflingar 23. apríl sl. samþykkti einróma að sameinast Verkalýðs- og sjómannafélaginu Boðanum, að því er segir í fréttatilkynningu á vefsíðu Eflingar.
„Þetta er mjög söguleg ákvörðun,“ segir Sigurður Bessason, formaður Eflingar. „Okkur þykir mjög mikilvægt að bæði félögin hafa samþykkt þetta með svo afgerandi hætti, fyrst Boðinn með nánast samhljóða atkvæðagreiðslu og svo Efling núna einróma,“ segir hann.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.