Eimskip vill fá meira fyrir sinn snúð

Aðstoðarmaður samgönguráðherra segir ráðherrann hafa fundað með vegamálstjóra í morgun. Ákveðið var að vegamálastjóri gengi á ný til samninga við Eimskip.

�?Málið er á því stigi að við höfum ekkert heyrt í Vegagerðinni síðan í síðustu viku,�? segir Guðmundur Petersen, rekstrarstjóri Herjólfs hjá Eimskipum. �?Við vorum beðin um að gera áætlun um kostnað við aukaferðir í sumar og við skiluðum þeirri áætlun inn í síðustu viku.�?

Guðmundur segir áætlunina hafa gert ráð fyrir hærri upphæð en þær 30 milljónir, sem ríkisstjórnarsáttmáli hljóðar upp á. Hann bíði nú eftir svari frá vegamálastjóra, sem bíði eftir heimild frá samgönguráðuneytinu.

Eimskip fær greiddar 400.000 krónur fyrir hverja ferð ferjunnar til Vestmannaeyja, en í samningi Vegagerðarinnar er gert ráð fyrir að fyrirtækið fái greiddar 600.000 krónur fyrir aukaferðir.

Aðstoðarmaður samgönguráðherra, Róbert Marshall, segir ráðherra hafa fundað með vegamálstjóra í morgun. Niðurstaða fundarins var sú að vegamálastjóri færi aftur að samningaborðinu með forsvarsmönnum Eimskipa og fái niðurstöðu í málið.

Mbl.is greindi frá.

Nýjustu fréttir

Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.