11 ára drengur undir stýri

Selfosslögregla veitti klukkan fimm í dag bifreið í sandinum vestan við �?seyrarbrú athygli. Í ljós kom að ellefu ára gamall drengur sat undir stýri og ók undir handleiðslu forráðamanns sem sat í farþegasæti. Sá á von á kæru fyrir að leyfa réttindalausum einstaklingi að aka bíl sínum, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. (meira…)

Jónsmessuhátíð og hópslagsmál við Pakkhúsið

Jónsmessuhátíð var á Eyrarbakka á laugardagskvöldið og talsverður fjöldi tók þátt í þeirri gleði sem boðið var upp á, varðeldur og söngur.Lögreglan þurfti að hafa afskipti af fólki vegna ölvunar fram eftir nóttu á Eyrarbakka. Einn maður var sleginn við Rauða húsið um kl. 01:30 aðfaranótt sunnudagsins og þurfti að flytja hann á sjúkrahús til […]

Hafa áhyggjur af næstu helgi

Með hliðsjón af því ástandi var ljóst að vegakerfið ber ekki þennan umferðarþunga. �?að er áhyggjuefni margra málsmetandi sérfræðinga að næsta helgi verið með svipuðum hætti sem er talin ein mesta ferðamannahelgi sumarsins.Alls voru 56 ökumenn kærðir fyrir að aka of hratt, 7 ökumenn eru grunaðir um að hafa ekið undir áhrifum áfengis og 2 […]

Eimskip vill 3 milljónir fyrir hverja ferð

Ríkisstjórnin samþykkti að verja í þetta 30 milljónum og gert var ráð fyrir að hver ferð kostaði 1,5 til 1,6 milljónir. Samkvæmt samningi Vegagerðar og Eimskips kostar hver ferð Herjólfs 400 þúsund krónur og aukaferð 600 þúsund. Ráðuneytið taldi áætlun sína ríflega með því að veita 30 milljónum í aukaferðirnar. �?að virðist ekki nægja því […]

Fjölskyldumóðir faldi fíkniefni á heimili sínu

Töluvert magn fíkniefna fannst á heimili hennar á Selfossi en fyrir dómi kvaðst hún ekki hafa vitað af efnunum. �?á lagði lögregla einnig hald á ólögleg eggvopn, en hún sagði þau vera minjagripi. Barnaverndaryfirvöldum var gerð grein fyrir húsleitinni þar sem tveir ungir drengir búa á heimili hennar. Síðasta sumar stöðvaði lögregla tvo karlmenn á […]

Hasspípa fannst á víðavangi

Vill lögregla hvetja alla þá sem búa yfir einhverjum upplýsingum varðandi fíkniefni hér í bæ að hafa samband og aðstoða þannig í baráttunni gegn þessu þjóðfélagsböli sem neysla fíkniefna er. Fullum trúnaði heitið. (meira…)

Eimskip vill fá meira fyrir sinn snúð

Aðstoðarmaður samgönguráðherra segir ráðherrann hafa fundað með vegamálstjóra í morgun. Ákveðið var að vegamálastjóri gengi á ný til samninga við Eimskip. �?Málið er á því stigi að við höfum ekkert heyrt í Vegagerðinni síðan í síðustu viku,�? segir Guðmundur Petersen, rekstrarstjóri Herjólfs hjá Eimskipum. �?Við vorum beðin um að gera áætlun um kostnað við aukaferðir […]

�?lfusárbrú lokuð í kvöld

Vegna malbikunarframkvæmda á Selfossi við hringtorg við �?lfusárbrú verður þjóðvegi 1 um brúna lokað frá kl. 21:00 til 02:00 í kvöld. Vegfarendum er bent á að fara um �?seyrarbrú eða um Iðubrú við Laugarás. (meira…)

�?étt setinn fundur í �?jórsárverum

Fundargestum voru kynntar tvennskonar tillögur að aðalskipulagi, þar sem önnur gerir ráð fyrir Urriðafossvirkjun en hin ekki. Tilgreindir voru kostir og gallar þess að hafa virkjunina á skipulagi en mikill meirihluti þeirra sem tóku til máls voru andvígir virkjun. (meira…)

Frans slapp ótrúlega vel

Frans, sem ólst upp í Vestmannaeyjum, slapp sjálfur nokkuð vel en hin, ökumaðurinn og stúlka sem var í aftursætinu lentu á gjörgæslu en bæði eru laus þaðan. �?Bílstjórinn gaf í í beygjunni á leiðinni að Granda og klessti á annan bíl. Bíllinn okkar snerist í hundrað og áttatíu gráður og rakst svo á Hamborgarabúlluna,�? segir […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.