Einstakt fágætissafn opnað - seinni hluti
20250518 143910
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri. Biskup Íslands, Guðrún Karls Helgudóttir. Logi Einarsson, menningarmálaráðherra. Ágúst Einarsson, fyrrverandi prófessor og rektor á Bifröst og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, kirkjumálaráðherra. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Á Safnadeginumá sunnudaginn sl. var nýr og sérútbúinn fágætissalur opnaður í Safnahúsi Vestmannaeyja. Hófst dagskráin í Ráðhúsinu þar sem flutt voru stutt ávörp. Á þau má horfa hér.

Um er að ræða eitt merkilegasta fágætisbókasafn landsins opnað almenningi en uppistaðan í því er um 1500 bækur sem Ágúst Einarsson, fyrrverandi prófessor og rektor á Bifröst hefur gefið Bókasafni Vestmannaeyja. Þar verður meðal annars að finna allar útgáfur Biblíunnar frá Guðbrandsbiblíu 1584, Þorláksbiblíu 1644og Steinsbiblíu 1728 að telja.  Elsta bókin í safninu er Vögguprent, frá 1498. Þá verða einnig í fágætissalnum 37 málverk eftir Jóhannes Kjarval en Vestmannaeyjabær mun eiga eitt stærsta safn Kjarvalsverka sem loksins verða gerð aðgengileg á varanlegri sýningu.  Verk eftir Júlíönu Sveinsdóttur prýða veggi sérstaks átthagarýmis með rösklega 2.000 bókum og blöðum, auk Íslandskorta frá um 1570.

Í dag sjáum við seinni hluta dagskrárinnar, en hún fór fram í hinu nýja safni. Upptakan er af myndbandssíðu Sagnheima. Upptöku og myndvinnslu annaðist Halldór B. Halldórsson. Dagskránni verða gerð góð skil í næsta blaði Eyjafrétta sem kemur út 29. maí.

Play Video

Nýjustu fréttir

Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.