Á mánudagsfundinum mætast Róbert Marshall þriðji maður Samfylkingar og Bjarni Harðarson annar maður á lista Framsóknar. Á þriðjudagsfundinum í Litlu Kaffistofunni mætast annars sætis mennirnir Árni Johnsen, sjálfstæðismaður, og Bjarni Harðarson, framsóknarmaður. Fundirnir hefjast báðir klukkan 12. Í fundarbyrjun verða stuttar framsögur en síðan gefst fundarmönnum kostur á að varpa fram spurningum og bera þannig saman viðhorf tveggja flokka.
Vinstri grænum hefur einnig verið boðið að taka þátt í fundaröðinni og er vonast til að þeir komi til leiks á síðari stigum.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst