Úrslitakeppnin af stað – ÍBV tekur á móti KA
Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

ÍBV og KA mætast í fyrsta leik úrslitakeppni Olís deildar karla í handbolta í kvöld. Leikurinn fer fram í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja og hefst klukkan 18:00.

Það er mikið undir strax í fyrsta leik og ljóst að Eyjamenn ætla að byrja einvígið af krafti. Handknattleiksdeild ÍBV hefur kallað eftir öflugum stuðningi og hvetur Eyjamenn til að mæta snemma og skapa alvöru heimavallarstemningu.

Upphitun hefst klukkan 17:00 í nýja fundarsalnum þar sem hægt verður að fá pylsur og drykki áður en haldið er í stúkuna. Þá munu Hvítu riddararnir mæta á svæðið og stýra stemningunni eins og þeim er einum lagið.

Leikurinn verður einnig sýndur á Handboltapassanum fyrir þá sem ekki eiga heimangengt. Eyjamenn þurfa á stuðningnum að halda – og allt bendir til þess að stúkan verði þéttsetin og stemningin rafmögnuð frá fyrstu mínútu. Nánari umfjöllun verður birt hér á Eyjafréttum að leik loknum.

Nýjustu fréttir

Livey tekur við streymi Olísdeildarinnar
Kristín skipuð í nýtt embætti sýslumanns
Opinn fundur um þjóðaratkvæðagreiðsluna
ESB-aðild gæti fært störf og verðmæti úr landi að mati SFS
Eyjakonur geta endurheimt þriðja sætið
Færri íbúðir og minna byggingarmagn við Strandveg 44
Bergey með fínasta karfa
Tilkynntur til barnaverndar eftir mynd af feðgum á veiðum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.