Eitt umferðaróhapp í vikunni
Eftir nokkuð annasamar vikur í byrjun árs var síðasta vika með rólegra móti hjá lögreglu. Skemmtanahald helgarinnar fór fram með ágætum og lítið um útköll á öldurhús bæjarins. Eitthvað var þó, að vanda, um að aðstoða þyrfti fólk vegna hinna ýmsu atvika sem upp komu í tengslum við skemmtanahald þess.
Eitt umferðaróhapp var tilkynnt lögreglu í liðinni viku án þess þó að um slys á fólki hafi verið um að ræða. �?happið átti sér stað á gatnamótum Kirkjuvegar og Skólavegar en ökumaður bifreiðar sem ekið var eftir Kirkjuvegi missti stjórn á akstrinum sökum hálku með þeim afleiðingum að bifreiðin sem hann ók lenti á kyrrstæðri bifreið sem var á gatnamótunum. �?nnur bifreiðin var óökufær eftir áreksturinn og var flutt í burtu með kranabifreið.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.