Sigurður Áss Grétarsson, forstöðumaður hjá Siglingastofnun, sagði sjólag undanfarið sjaldan hafa hentað til dýpkunarstarfa en unnið verði að dýpkun í Landeyjahöfn þegar veður leyfi. „Það er alfarið undir veðri komið hvenær gera má ráð fyrir að dýpi verði nægjanlegt fyrir Herjólf,“ sagði hann þegar spurt var hvenær siglingar gætu hafist aftur í Landeyjahöfn.