Elliði Vignisson - Hvernig hefði farið fyrir smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju?
Í lok seinasta árs og upphafi þessa lögðust bæjarfulltrúar í Vestmannaeyjum þungt á árarnar í samstarfi við þingmenn Suðurlands til að tryggja undirskrift nýs smíðasamnings. Hér heima og víðar blöskraði ýmsum sú mikla áhersla sem við lögðum á að drífa í undirskrift. Nú les fólk hinsvegar um 10 milljarða niðurskurð í áætluðum samgöngumálum.
Mörg góð og brýn verkefni lenda þar undir hnífnum svo sem vegur um Teigskóg, Dettifossvegur, hringvegurinn í Berufirði og ný brú yfir Hornafjarðarfljót. Blessunarlega var búið að skrifa undir samning um nýsmíði Vestmannaeyjaferju. �?víst er hver örlög þess verkefnis hefði annars orðið.
Ekki ólíklegt að ný Vestmannaeyjaferja hefði verið skorin niður.
Miðað við allt og allt tel ég sjálfur ekki ólíklegt að til álita hefði annars komið að falla frá nýsmíði Vestmannaeyjaferju. Tjónið hefði orðið gríðarlegt fyrir samfélagið í Eyjum því hvað sem hver segir þá er flestum nú ljóst að núverandi Herjólfur ræður afar illa við aðstæður við Landeyjahöfn.
Enn óleyst verkefni
Mörg verkefni eru þó enn óleyst og ber þar fyrst að nefna mikilvægi þess að koma upp einhverskonar blöndu af föstum og færanlegum búnaði til dýpkunar á því litla svæði sem er til mestra vandræða hvað dýpi varðar, það er að segja á milli hafnargarðanna.
Kynna þarf drög að lausnum strax í vor
Vestmannaeyjabær hefur óskað eftir því að lausnir verði kynntar núna í vor og boðnar út nægilega tímalega til að hægt verði að fá reynslu á búnaðinn næsta vetur. Samkvæmt þeim upplýsingum sem fengist hafa er nú unnið að lausnum hvað þetta varðar.
Bjart framundan
Í fyrsta skipti síðan 2010 er nú bjart framundan í samgöngum á sjó við Vestmannaeyjar. Samkvæmt áætlun á smiði nýrrar ferju að ljúka sumarið 2018, eða nánar tiltekið 20. júní samkvæmt samningum. �?á á að vera búið að tilraunakeyra nauðsynlegan dýpkunarbúnað. Samhliða þarf síðan að finna verkfræðilega lausn á því hvernig skipinu verður tryggt skjól í aðsiglingu og ráðast í framkvæmdir þar að lútandi.
Nýtum tækifærin
Gangi áætlanir eftir á mannlíf og búsetugæði í Vestmannaeyjum eftir að njóta verulega góðs af þessum samgöngubótum. Með samstilltum vilja verður jafnvel hægt að laða hingað nýja íbúa, ný fyrirtæki og fjölga tækifærum þeirra sem þegar búa í okkar góða samfélagi. �?ar njótum við Eyjamenn svo vel að eiga 4300 íbúa sem vilja Eyjunum allt hið besta og eru því óhræddir við að tala af jákvæðni og bjartsýni um það samfélag sem þeir byggja. Án slíks nýtast engin tækifæri.

Nýjustu fréttir

ÍBV og FH skildu jöfn á Hásteinsvelli
Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári
Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatíma
Spurt og svarað: Guðni Hjöll frá Miðflokknum
ÍBV hefur leik í Bestu deildinni – tekur á móti FH á Hásteinsvelli
Flugvél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Eyjum
Lækkandi ölduhæð og Álfsnesið á leiðinni
Spurt og svarað: Erlingur frá Eyjalistanum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.