Lækkandi ölduhæð og Álfsnesið á leiðinni
Veðrið hefur haft áhrif á samgöngur og siglir Herjólfur til Þorlákshafnar þessa dagana. Mynd Addi í London.

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar seinnipartinn í dag og þar til annað verður tilkynnt. Brottför frá Vestmannaeyjum er kl. 07:00 og 16:00, en frá Þorlákshöfn kl. 10:45 og 19:45.

Þetta er kunnuglegt stef á Facebook-síðu Herjólfs síðustu daga, vikur og mánuði, en nú er von um betri tíð með blóm í haga.

Rétt í þessu var ölduhæð í Landeyjahöfn um 2,5 metrar og fer lækkandi. Samkvæmt ölduspá verður hún innan við tveir metrar á morgun og á mánudag.

Ljósi punkturinn er sá að Álfsnesið, dæluskip Björgunar, er rétt komið fram hjá Sandgerði á leið sinni til Landeyjahafnar. Það er ekki hraðskreiðasta skip í heimi – lullar áfram á um sjö mílum – en kemst vonandi á leiðarenda, þó hægt fari. Gangi allt að óskum gæti styttst í að Landeyjahöfn verði opnuð óháð flóði og fjöru.

Nýjustu fréttir

Lúkas Goði – Stefnan tekin á atvinnumennsku
Alexandra Ósk – Þetta líður miklu hraðar en þú heldur
Vilja að hafinn verði undirbúningur að smíði nýrrar ferju
ÍBV sækir Víking heim á morgun
Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun
Meistaramót GV hefst á morgun
Ölduhæð raskar samgöngum – aðeins ein ferð farin það sem af er deginum
Myndasyrpa frá göngumessu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.