Engin börn í vistun utan Vestmannaeyja
Framkvæmdaáætlun í barnavernd samþykkt og áskoranir framundan í málefnum fatlaðs fólks
radhustrod_ráðhús_merki_cr
Ráðhús Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyja fjallaði um stöðu barnaverndarmála og málefni fatlaðs fólks á fundi sínum nýverið.

Samþykktu framkvæmdaáætlun í barnavernd

Lögð var fram framkvæmdaáætlun í barnavernd fyrir árin 2023–2027. Sviðsstjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs og deildarstjóri velferðarþjónustu fóru yfir helstu áherslur og markmið áætlunarinnar.

Ráðið samþykkti áætlunina fyrir sitt leyti og vísaði henni til bæjarstjórnar til endanlegrar staðfestingar.

Staða vistunarmála í barnavernd

Deildarstjóri velferðarþjónustu kynnti jafnframt stöðu vistunarmála og verkferla þeim tengdum. Fram kom að staða vistunarmála í barnavernd hefur breyst mikið á undanförnum árum og þróunin verið í rétta átt.

Verkferlar eru skýrir og markvisst er fylgst með öllum börnum sem eru í vistun á vegum sveitarfélagsins. Þá kom fram að engin börn eru nú í vistun utan Vestmannaeyja.

Málefni fatlaðs fólks kalla á aukið fjármagn

Sviðsstjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs fór einnig yfir stöðu og þróun málaflokks fatlaðs fólks, bæði á landsvísu og í Vestmannaeyjum.

Fram kom að málaflokkurinn hefur tekið miklum breytingum frá því hann var fluttur frá ríki til sveitarfélaga árið 2011. Kröfur um magn og gæði þjónustu hafa aukist verulega og ljóst er að málaflokkurinn kallar á sífellt meira fjármagn.

Helstu áskoranir fram undan snúa að búsetumálum fatlaðs fólks og þeirri þjónustu sem þarf að fylgja slíkri búsetu. Ráðið þakkaði fyrir kynninguna og umræðuna um stöðu málaflokksins.

Nýjustu fréttir

Nemendum boðið á sundnámskeið
Dýpkun strandar á veðri og ölduhæð
Eyjafiskur í mikilli sókn vestanhafs
Segja forsendur útboðs heilsuræktar hafa breyst verulega
ÍBV tekur á móti ÍR
Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Fermingar á næsta leyti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.