Svo virðist sem hugmynd um 120 herbergja hótel í Vestmannaeyjum sé enn inni í myndinni ef marka má auglýsingu í Eyjafréttum í dag. Í henni kemur fram að þróunaraðili hafi lagt fram tillögu um byggingu 120 herbergja hótelbyggingar í Vestmannaeyjum og að bæjaryfirvöld hafi valið fimm staði sem þykja koma til greina fyrir hótelið. Íbúar í Vestmannaeyjum geta kosið hvaða staður af þessum fjórum henti best, með rafrænni kosningu frá og með deginum í dag.