Eyjalífið í gegnum linsu Óskars Péturs
Ljósmyndasýning Óskars Péturs fékk góðar undirtektir í Safnahúsinu. Óskar er aðalljósmyndari Eyjafrétta. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ljósmyndasýning Óskars Péturs Friðrikssonar opnaði í Safnahúsinu í gær og er hluti af dagskrá Safnahelgarinnar í Eyjum. Nokkrir tugir gesta mættu á opnunina þar sem Óskar Pétur sagði frá tilurð bókarinnar Westman Islands.

Fáir eru þeir viðburðir í Vestmannaeyjum á síðustu árum og áratugum sem Óskar Pétur hefur ekki fest á filmu. Úrval mynda hans hefur nú verið gefið út í hinni glæsilegu gjafabók Westman Islands, og eru myndirnar á sýningunni einmitt úr bókinni sem verður til sölu á staðnum.

Sýningin er í Einarsstofu og verður opið daglega kl. 10-17. Myndasyrpa frá opnuninni fylgir hér að neðan.

Saga á bakvið hverja mynd! Óskar Pétur segir Ágústi Karlssyni frá mynd sem hann tók á kappleik.

Nýjustu fréttir

Tómas Bent með sigurmark Hearts
Tilboð langt undir áætlun í dýpkun Landeyjahafnar
Loðnan berst til Eyja
Nær sjötíu manns á þorrablóti Vinnslustöðvarinnar
Þegar jörðin talar – Og við þurfum að hlusta
Bæjarráð samþykkir breytingar á reglum um heimgreiðslur
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins verður 13. mars
Alexandra Ósk framlengir við ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.