Eyjalistinn heldur félagsfund fimmtudaginn 12. mars klukkan 17 í Líknarsalnum við Faxastíg. Á fundinum verður tillaga uppstillinganefndar um framboðslista Eyjalistans fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar 16. maí lögð fram til samþykktar.
Allt félagsfólk er hvatt til að mæta og taka þátt í fundinum. Jafnframt er minnt á að þeir sem vilja skrá sig í félagið geta gert það á Facebook-síðu Eyjalistans. Eyjalistinn leggur áherslu á að tryggja áfram sterka málsvara í bæjarstjórn Vestmannaeyja og hvetur félagsfólk til virkrar þátttöku í starfi félagsins, segir í tilkynningu.
Nánari upplýsingar:
Eyjalistinn – Facebook
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.