Eyjamaðurinn Ásgeir Sigurvinsson hlaut Fálkaorðuna
Halla forseti og Ásgeir á Bessastöðum í dag. Myndir Sigurjón Ragnar.

Forseti sæmdi fjórtán Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag, 1. janúar 2026. Meðal þeirra er Eyjamaðurinn Ásgeir Sigurvinsson, fyrrverandi knattspyrnumaður sem fékk viðurkenningu fyrir afreksárangur í knattspyrnu.

 

Halla forseti og þau sem hlutu heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag.

 

Þau sem fengu heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu eru:

  1. Anna Júlíana Sveinsdóttir, söngkona og söngkennari, fyrir framlag til klassískrar tónlistarmenntunar.
  2. Ásgeir Sigurvinsson, fyrrverandi knattspyrnumaður, fyrir afreksárangur í knattspyrnu.
  3. Bragi Valdimar Skúlason, hugmynda- og tónhöfundur, fyrir framlag til þróunar og varðveislu íslenskrar tungu.
  4. Guðrún Þorgerður Larsen, jarðfræðingur, fyrir framlag til jarðvísinda og almannavarna.
  5. Ingólfur Guðnason, garðyrkjufræðingur, fyrir frumkvöðlastörf í lífrænni ræktun og kennslu.
  6. Karl Gunnarsson, sjávarlíffræðingur, fyrir framlag til rannsókna á botnþörungum, lífríki hafsins og vistkerfi strandsvæða.
  7. Kristján Kristjánsson, heimspekingur og prófessor, fyrir kennslu- og fræðistörf á vettvangi siðfræði og mannkostamenntunar.
  8. Laufey Lín Bing Jónsdóttir, tónlistarkona, fyrir framlag til tónlistar á Íslandi og á alþjóðavettvangi.
  9. Pálmi V. Jónsson, lyf- og öldrunarlæknir og prófessor emeritus, fyrir framlag til öldrunarlækninga og nýsköpunar í öldrunarþjónustu.
  10. Rósa Marinósdóttir, hjúkrunarfræðingur, fyrir sjálfboðastörf í þágu íþróttaiðkunar ungs fólks um allt land og framlag til samfélagsmála í heimabyggð.
  11. Sigríður Sigurðardóttir, fyrrverandi safnstjóri, fyrir framlag til varðveislu torfbæja og annarra menningarminja.
  12. Valgerður Benediktsdóttir, fyrrverandi réttindastjóri, fyrir framlag til framgangs íslenskra bókmennta á erlendri grundu.
  13. Yngvi Pétursson, fyrrverandi rektor og kennari, fyrir framlag til menntunar og brautryðjendastarfs í tölvufræðikennslu á Íslandi.
  14. Þórey Einarsdóttir, umsjónarkona, fyrir framlag til heimilislausra og bágstaddra.

 

Nýjustu fréttir

Sýningin Geological Rhapsody opnar á morgun
Nýtt fyrirkomulag í Uppbyggingarsjóði Suðurlands
Íþróttahátíð ÍBV í kvöld
Bærinn niðurgreiðir heimsendan mat um 53%
Sigurður Guðmundsson á Hljómey í ár
Jákvæðar umræður um Eyjagöng á Hvolsvelli
Eyjakona og drottning íslenskrar knattspyrnu
Bæjarstjórnarfundur í beinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.