Ríkisstjórnin hefur fjallað í tvígang um tilboð Vestmannaeyjabæjar og Vinnslustöðvarinnar í smíði og rekstur nýrrar farþegaferju án niðurstöðu, segir í bókun bæjarráðs Vestmannaeyja í gær. Kristján L. Möller samgönguráðherra segir að heimildir Eyjamanna séu ekki réttar og enginn ágreiningur sé innan ríkisstjórnarinnar um málið. Bæjarstjóri hefur engar upplýsingar fengið um framvindu málsins eftir að svarfrestur var veittur fyrir rúmri viku. Eyjamenn túlka þögn stjórnvalda sem svo að flest bendi til þess að tilboði þeirra verði hafnað og miklar tafir verði á verkinu.