Fyrstu tölur eru komnar úr talningu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum þar sem ákveðið verður hvernig framboðslisti flokksins verður skipaður fyrir komandi kosningar. Alls gáfu fjórtán einstaklingar kost á sér í prófkjörinu en kosið er um efstu sæti listans.
Utankjörfundaratkvæðagreiðslu lauk í gærkvöldi og nýtti fjöldi kjósenda sér þann möguleika. Samtals kusu 494 utankjörfundar.
Á kjörskrá eru 1.672. Samkvæmt upplýsingum frá kjörstjórn kusu 1.178 í prófkjörinu sem jafngildir 70,5% kjörsókn.
Uppfært: kl. 00.45
Nú hafa 696 atkvæði verið talin.
Eyjafréttir munu uppfæra fréttina þegar næstu tölur berast. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta leit við á kosningavökunni í Akóges í kvöld og má sjá myndir frá honum hér að neðan.