Fær Samfylkingin þrjá?
16. apríl, 2007

Ingibjörg Sólrún virðist vera að tapa því mikla trausti sem hún hafði meðal kvenna og blaður �?ssurar virkar ekki.
Hér í kjördæminu virðist þó staða flokksins vera með skásta móti ef marka má skoðanakannanir. Björgvin sveitungi minn skipar efsta sæti listans. Björgvin er mjög virkur þingmaður og hefur góða framkomu,þannig að hann nær til kjósenda.�?g get vel ímyndað mér að hann geti komið ágætlega útúr kosningabaráttunni.

Lúðví Bergvinsson,Eyjamaður,skiðpar annað sætið. Lúðvík ætlaði sér stærri hlut og var búinn að sannfæra sjálfan sig um að hann yrði ráðherra. �?rslit prófkjörsins blésu þessum draumi í burtu á einu bretti. �?etta sést greinilega á Lúðvík. þaðavantar allan kraft í hann og Eyjamenn eru margir hverjir ansi óhressir með hann.

�?g skil ekki alveg hvað Róbert Marshall er að gera hjá Samfylkingunni. Mér finnst hann svo róttækur í öllum skoðunum að ég held meira að segja að hann hefði talist langt til vinstri hjá Vinstri grænum.
�?g er ekki viss um að framkoma hans og málflutningur eigi eftir að hjálpa SF mikið.
Guðný Karlsdóttir er örugglega ágætis pólitíkus en hún er of neðarlega á listanum til að höfða til Suðurnesjamanna. Sama má segja um Guðrúnu Erlingsdóttur Eyjakonu. �?að er svo fjarlægur draumur að hún eigi möguleika á þingsæti að Vestmannaeyingar munu ekki kjósa listann með það í huiga að koma henni að.

Mér er með öllu óskiljanlegt hvers vegna Samfylkingarfólk á Suðurnesjum gat ekki staðið saman og tryggt Jóni Gunnarssyni úr Vogunum áfram öruggt þingsæti. Jón hefur sýnt það í starfi sínu að þar fer mjög heilsteyptur maður og sanngjarn. �?g sat í mörg ár með honum í stjórna Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. �?rátt fyrir ólíkar stjórnmálaskoðanir fannst mér einstaklega gott að vinna með Jóni. Enn og aftur,ég er alveg undrandi að SF skyldi hafna honum. Flokkurinn á eftir að gjalda þess á Suðurnesjum og jafnvel víðar í kjördæminu.

�?rátt fyrir dapurt gengi SF að undanförnu held ég að flokkuirinn eigi eftir að bæta við einhverjum prósentum og Vinstri græn munu dala.Mér finnst því líkllegt að SF nái þremur mönnum í kjördæminu, þótt það sé nú ekki mín óskastaða að Róbert Marshall komist inn.

Sigurður Jónsson, sveitarstjóri í Skeiða- og Gaulverjarbæjarhreppi.
Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
6. tbl. 2025
6. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.