Fasteignafélag fékk ekki bætur vegna meintra galla á húsi í Eyjum
heradsdomur_sudurlands-2.jpg
Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdóm­i Suður­lands.

Héraðsdómur Suðurlands hefur sýknað Landsbankann hf. af kröfu Fundar fasteignafélags ehf., sem krafðist rúmlega 7,2 milljóna króna í bætur vegna meintra galla á fasteign við Hásteinsveg 6 í Vestmannaeyjum.

Fundur fasteignafélag, sem sérhæfir sig í kaupum og rekstri fasteigna, keypti húsið af bankanum í júní 2021. Fljótlega eftir afhendingu taldi félagið sig hafa orðið vart við fúa og rakaskemmdir í útveggjum og þaki hússins og krafðist endurgreiðslu eða skaðabóta.

Matsmaður sem dómkvaddur var á vegum félagsins mat kostnað við úrbætur á tæpar 7,3 milljónir króna og taldi skemmdir hafa verið til staðar við afhendingu. Bankinn mótmælti og vísaði til þess að húsið væri frá árinu 1910, hafi verið selt í „því ástandi sem það var“, og að kaupanda hefði verið eindregið bent á að fá fagmann til að skoða eignina.

Í söluyfirliti, kauptilboði og kaupsamningi hafi verið tekið fram að Landsbankinn hefði eignast húsið í skuldaskilum, aldrei notað það og mælt með sérfræðilegri skoðun. Þar hafi jafnframt komið fram að húsið þarfnist mikils viðhalds bæði utan sem innan.

Dómurinn féllst á með Landsbankanum og taldi Fund hafa vanrækt þá skoðunarskyldu sem honum bar samkvæmt lögum um fasteignakaup. Hús sem reist var árið 1910 mætti vænta að bæri eðlileg merki aldurs og slit. Þá hefði kaupanda verið gefið tilefni til að fá fagmann til skoðunar en það ekki verið gert.

Dómurinn taldi því ekki sannað að Landsbankinn hefði leynt upplýsingum eða brugðist upplýsingaskyldu sinni. Var bankinn sýknaður af öllum kröfum, og Fundur fasteignafélag dæmt til að greiða bankanum 1.300.000 krónur í málskostnað.

Hér má kynna sér dóminn.

Nýjustu fréttir

Saltfisksala hjá meistaraflokkum ÍBV
ÍBV með mikilvægan sigur á ÍR
Kveikjum neistann: Jákvæðar vísbendingar
Hvattning til Eyjamanna
Heilsuefling starfsfólks fær aukið vægi
Handhafar Frétta-píramída 1992-95
ÍBV sækir ÍR heim
Siglt til Þorlákshafnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.