Fátt um makríl í köldum sjó

„Við höfum leitað á Kap og Hugin að makríl sunnan við Eyjar og þaðan til austurs og vesturs en sjáum ekkert nema nokkurt átulíf. Sjórinn er frekar kaldur, átta til níu gráður við yfirborðið. Makrílinn er ofboðslega dreifður þegar hann kemur upp að landinu og erfitt að sjá hann. Við erum líka snemma á ferðinni en sjáum hvað setur þegar kemur fram í júní. Sjórinn mætti vera hlýrri og svo þurfum við sól og gott veður á miðunum.“

Jón Atli Gunnarsson, skipstjóri á Kap VE, var staddur suðaustur af Vestmannaeyjum fyrir hádegið og Huginn VE á sama tíma talsvert lengra í suður frá Eyjum. Skipin hafa leitað makríls undanfarna daga en sá góði fiskur lætur ekki sjá sig svo nokkru nemi.

„Bæði skipin köstuðu suður af Eyjum fyrr í vikunni til að strekkja trollin og stilla þau af. Við toguðum aðeins en í belginn kom ekki annað en áta. Við á Kap köstuðum aftur síðar,  við Öræfagrunnshornið, og náðum þá örfáum fiskum, reyndar stórum makríl – 420 til 500 grömmum að þyngd.“

Samanlagður makrílkvóti Vinnslustöðvarinnar og Hugins er um 24.000 tonn og vinnufúsar hendur í tugatali eru í biðstöðu eftir að vertíðin hefjist og vinnslan í landi fari í gang.

„Kap landaði fyrsta makríl vertíðarinnar í fyrra 11. júní, 200 tonnum. Við höfðum á tilfinningunni að hægt hefði verið að byrja veiðar fyrr þá. Þess vegna vildum við kanna ástandið á miðunum strax fyrir sjómannadaginn í ár,“ segir Sindri Viðarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs VSV.

Makrílleitin er í kristilegum anda Mattheusarguðspjalls sem allt eins víst er að vitnað verði til í sjómannamessunni í Landakirkju á sunnudaginn kemur:

  • Biðjð og yður mun gefast, leitið og þér munið finna, knýið á, og fyrir yður mun upplokið verða.

Sá sem ekki leitar finnur auðvitað ekkert. Kemur dagur eftir þennan dag á makrílmiðum.

Nýjustu fréttir

„Fínasti vertíðarfiskur”
Kallað eftir hugmyndum fyrir Goslokahátíð 2026
Ein ferð í Landeyjahöfn
Heilsurækt við Íþróttamiðstöðina boðin út á ný eftir kærumál
Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.