7. júlí síðastliðinn lagði Eyjakonan Sarah Hamilton í mikinn hjólreiðatúr. Hún ætlar að hjóla, ásamt systur sinni, Claire Butler frá syðsta odda Bretlands, Lands End, að nyrst odda landsins, John O’Groats. Alls er leiðin um 1.600 kílómetrar en Sarah sagði í stuttu skeyti á fimmtudaginn að ferðin gengi vel, 128 kílómetrar væru að baki og veðrið hefði að mestu verið hagstætt.