Fimm kyn­ferðis­brot til­kynnt á �?jóðhátíð
Fimm kyn­ferðis­brot voru til­kynnt sem áttu sér stað í um­dæmi lög­reglu­stjór­ans í Vest­manna­eyj­um á tíma­bil­inu 30. júlí til 3. ág­úst 2015. �?etta seg­ir í svari inn­an­rík­is­ráðherra við fyr­ir­spurn Helga Hrafns Gunn­ars­son­ar, þings­manns Pírata, varðandi kyn­ferðis­brot á �?jóðhátíð í Vest­manna­eyj­um í ár.
Fyr­ir­spurn­ing er svohljóðandi:
�??Hversu marg­ar til­kynn­ing­ar um kyn­ferðis­brot ann­ars veg­ar og kær­ur vegna kyn­ferðis­brota hins veg­ar bár­ust lög­reglu­yf­ir­völd­um í tengsl­um við þjóðhátíð í Vest­manna­eyj­um 2015?�??
Fram kem­ur í svari �?laf­ar Nor­dal inn­an­rík­is­ráðherra, að ráðuneytið hafi óskað eft­ir um­sögn embætt­is lög­reglu­stjór­ans í Vest­manna­eyj­um.
�??Í um­sögn embætt­is­ins, dags. 30. sept­em­ber 2015, kem­ur fram að til lög­reglu­yf­ir­valda voru til­kynnt fimm kyn­ferðis­brot sem áttu sér stað í um­dæmi lög­reglu­stjór­ans í Vest­manna­eyj­um á tíma­bil­inu 30. júlí til 3. ág­úst 2015,�?? seg­ir í svar­inu.
�?á er birt­ur listi yfir þau brot sem til­kynnt var um, hvenær þau áttu sér stað og hvar og hvenær þau voru kærð eða til­kynnt.
31. júlí: Kyn­ferðis­brot, nauðgun, misneyt­ing, kært 6. ág­úst hjá lög­reglu­stjór­an­um á höfuð­borg­ar­svæðinu.
1. ág­úst: Kyn­ferðis­brot, nauðgun, til­kynnt 2. ág­úst hjá lög­reglu­stjór­an­um í Vest­manna­eyj­um.
1. ág­úst: Kyn­ferðis­brot, blygðun­ar­semi, kært 5. ág­úst hjá lög­reglu­stjór­an­um á Suður­landi.
1. ág­úst: Kyn­ferðis­brot, kyn­ferðis­leg áreitni, kært 4. ág­úst hjá lög­reglu­stjór­an­um í Vest­manna­eyj­um.
2. ág­úst: Kyn­ferðis­brot, nauðgun, kært 2. ág­úst hjá lög­reglu­stjór­an­um í Vest­manna­eyj­um.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.