Í fréttum í fjölmiðlum hefur komið fram að Vestmannaeyjabær sé meðal þeirra sveitarfélaga sem fengið hafi aðvörun frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga vegna skuldsetningar og/eða slæmrar rekstrarafkomu og er óskað eftir upplýsingum um það hvernig sveitarstjórn hyggist bregðast við fjárhagsvanda sveitarfélagsins. Vanda sem ekki er til staðar. Að gefnu tilefni vill Vestmannaeyjabær því taka af öll tvímæli um það að bærinn á ekki við neinn fjárhagsvanda að stríða og þarf ekki að grípa til neinna ráðstafanna til að rétta við rekstur sinn. Að halda slíku fram er fjarstaða og gerir það eitt að draga úr trúnaði þeirra sem til þekkja á Eftirlitsnefndinni.