Kvennalið ÍBV í knattspyrnu tapaði í kvöld fyrir Stjörnunni en liðin áttust við á Hásteinsvelli. Stjarnan, sem er ríkjandi Íslandsmeistari, var sterkari aðilinn í leiknum og komst yfir strax á 15. mínútu þegar Stjarnan fékk vítaspyrnu. Sóknir ÍBV liðsins í fyrri hálfleik voru fáar og fyrsta skot ÍBV á markið var á 30. mínútu en staðan í hálfleik var 1:0. Eyjaliðið lék betur í síðari hálfleik, án þess þó að ná að skapa sér nein veruleg færi. �?að var eins og leikmenn ÍBV hefðu ekki trú á því að sækja fram, því oftar en ekki var boltinn leikur aftur til varnarinnar þegar hægt hefði verið að sækja hratt fram með eldfljótu framherja ÍBV. Stjarnan bætti við öðru marki sínu á 60. mínútu og segja má að botninn hafi þá dottið úr leik ÍBV. �?riðja markið kom svo á 77. mínútu og Stjarnan bætti því fjórða við í uppbótartíma með síðustu spyrnu leiksins. 0:4 lokatölur leiksins, óþarflega stórt tap hjá ÍBV en þó klassa munur á liðunum tveimur.