300 tonn, takk fyrir !!

 Það bjóst enginn við að það væri þetta magn í pokanum því við vorum búnir að sjá svo illa á aflanemana og það rétt kornaði í gatinu á höfuðlínustykkinu. En það kom annað á daginn heil 300 tonn. Við dældum 200 tonnum í okkur og restin, eða 100 tonn fóru yfir í Hákon EA. Síldin […]

Hemmi og Gunnar Heiðar í byrjunarlið Íslands í kvöld.

Created by PhotoWatermark Professional

Í kvöld eigast við á Laugardalsvelli Ísland – Spánn og er landsleikurinn liður í undankeppni EM 2008 í Sviss og Austurríki. Hermann er fyrirliði í kvöld og leikjahæsti landsliðsmaðurinn í hópnum með 71 landsleik og þegar tölfræði landsliðsins er skoðuð er Hermann næst markahæsti leikmaðurinn í hópnum á eftir Eiði Smára. www.eyjar.net fann til nokkur skemmtileg […]

Margrét Lára og Olga á skotskónum

Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði öll þrjú mörk Vals sem sigraði Fylki, 3:0, í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu á Valbjarnarvelli í kvöld. Olga Færseth bætti um betur því hún skoraði fjögur mörk fyrir KR sem vann ÍR, 8:0, í Breiðholtinu á sama tíma. Þór/KA lagði Stjörnuna í Garðabæ, 2:1, og Keflavík og Fjölnir skildu jöfn, 1:1. […]

Milljónir króna tapast á meðan ný skipalyfta er ekki komin í gagnið

Í slippnum í Reykjavík má sjá hvar Kap VE og Þórunn Sveinsdóttir VE eru í lagfæringu og er það Slippurinn í Reykjavík sem sér um verkið.Kap VE er of stórt skip fyrir gömlu skipalyftuna en verkið sem unnið er á Þórunni Sveinsdóttur hefði Skipalyftan í eyjum getað tekið að sér.Í samtali við Stefán Jónsson verkstjóra […]

Bjartir tímar framundan í Eyjum

Guðjón Hjörleifsson fyrrverandi bæjarstjóri og alþingismaður opnaði í morgun fyrirtækið Heimaey ehf þjónustuver að Bárustíg 1. Guðjón sem er löggiltur fasteigna- og skipasali að mennt mun vera með fasteigna- og skipasölu ásamt því að hann mun vera með umboð fyrir Vörð tryggingafélag. Eyjar.net tóku púlsinn á Gaua bæjó. “Ég hef verið í áhættustarfi frá árinu […]

Grunnskóli Vestmannaeyja á Norðurlandamóti í skák

Í dag hefst Norðurlandamót grunnskólasveita í skák í Örsundsbro í Svíþjóð.Fulltrúar Íslands eru Grunnskóli Vestmannaeyja og er sveitin þannig skipuð: 1. borð Nökkvi Sverrisson2. borð Alexander Gautason3. borð Sindri Freyr Guðjónsson4. borð Hallgrímur Júlíussonvaram. Kristófer Gautason Á meðan á mótinu stendur mun Karl Gauti blogga og koma með fréttir eins fljótt og hægt er, á […]

Árni M. Mathiesen situr fyrir svörum

www.eyjar.net ætla að gefa lesendum sínum kost á því í vetur að senda inn spurningar í gegnum www.eyjar.net/spjall á kjörna stjórnmálamenn kjördæmisins. Fyrstur til að sitja fyrir svörum er Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra. Til að senda inn spurningu verður að skrá sig inn á spjallborð www.eyjar.net/spjall og hægt er að senda inn spurningu í flokknum Pólitík – Spurðu ráðherrann […]

Skuldir og skuldbindingar Vestmannaeyjabæjar eru rúmlega 4.1 milljarður

Á minnisblaði sem Elliði bæjarstjóri lagði fram um skuldastöðu Vestmannaeyjabæjar á bæjarráðsfundi í gær kemur fram að skuldir og skuldbindingar bæjarins eru rúmlega 4.1 milljarðar. Nýverið var hlutafé Vestmannaeyjabæjar selt í Hitaveitu Suðurnesja og fékkst fyrir það 3.6 milljarðar. Miðað við þessa skuldastöðu Vestmannaeyjabæjar eiga kjörnir bæjarfulltrúar erfitt verk fyrir höndum að fara með þá fjármuni á […]

Lundaveiðitímabilið í sumar (seinni hluti)

Það er ánægjulegt að koma niður að höfn þessa dagana, enda mikið af lundapysju í höfninni. Þetta eru skýr skilaboð, um að ég hafi haft rétt fyrir mér um að lundavarpið yrði í ágætu meðallagi í sumar. Í gær lenti ég á spjalli við vin minn, Ingvar Sigurðsson, forstöðumann Náttúrufræðistofu Suðurlands, og var hann frekar […]

1-3 sigur hjá ÍBV á útivelli

Lið ÍBV vermir nú 4.sæti 1.deildar með 35 stig eftir glæsilegan útisigur í kvöld á móti Njarðvík. Enn er von fyrir ÍBV að komast upp í úrvalsdeild en liðið er 3 stigum á eftir Fjölnismönnum en Fjölnir á leik til góða. Það var einungis eftir 10 mínútna leik í kvöld að Ian Jeffs skoraði fyrsta […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.