Ljósleiðari í dreifbýli boðinn út

Á fundi framkvæmda og hafnarráðs í gær lágu fyrir útboðsgögn vegna ljósleiðaralagna í dreifbýli í Vestmannaeyjum, en verkefnið er unnið í samræmi við verkefnið Ísland ljóstengt og hlaut til þess styrk frá fjarskiptasjóði. Ísland ljóstengt er tímabundið landsátak í þá veru og féllu alls 3.700 heimili undir verkefnið í upphafi. Gert er ráð fyrir að […]
Deilt um stöðu hafnarstjóra

Fjárhagsáætlun Hafnarsjóðs Vestmannaeyja 2021 eins og hún var afgreidd við fyrri umræðu í bæjarstjórn var til umræðu á fundi framkvæmda og hafnarráðs í gær. Rekstrartekjur eru áætlaðar 413 milljónir króna og rekstrarniðurstaða eftir fjármagnsliði verði jákvæð um 23,8 milljónir króna. Ráðið samþykkti fyrirliggjandi fjáhagsáætlun fyrir árið 2021 og vísar henni til síðari umræðu í bæjarstjórn með […]
Kjánahrollur

Líklega er leitun að meira taktleysi í tillöguflutningi í þinginu en finna má í þingsályktunartillögu 18 þingmanna um bjóða konum frá Evrópulöndum að ferðast til Íslands í fóstureyðingar. Framsögumaður málsins er þingmaðurinn Rósa Björk Brynjólfsdóttir en með henni á þingsályktuninni eru allir þingmenn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata. Flóttamaður raunveruleikans Rósa Björk Brynjólfsdóttir gat valið sér […]
Deiliskipulag Austurbæjar við miðbæ

Tekin var fyrir á fundi umhverfis og skipulagsráðs í vikunni tillaga af deiliskipulagi fyrir norðurhluta austurbæjar. Deiliskipulagssvæðið afmarkast af deiliskipulagsmörkum miðbæjar, miðlínu Ásavegar, mörkum aðliggjandi deiliskipulags fyrir þjónustustofnanir, mörkum deiliskipulags austurbæjar, jaðri Eldfellshrauns og deiliskipulagi gosminja Blátinds. Deiliskipulagssvæðið er um 4,1 ha að stærð. Innan deiliskipulagssvæðis eru tveir landnotkunarreitir, íbúðarsvæðis ÍB-3 og miðsvæði M-1. Skipulagstillaga […]
Hákon Daði í úrvalsliði EHF – myndband

Hákon Daði Styrmisson er í liði fyrstu og annarrar umferðar undankeppni Evrópumótsins í handknattleik eftir leik sinn með íslenska landsliðinu í Laugardalshöll gegn Litháaen í síðustu viku. Handknattleikssamband Evrópu tók saman úrvalsliðið og birti á vef sínum í dag ásamt myndskeiðinu sem er hér að neðan. Þar er Hákon ekki í amalegum félagsskap en meðal […]
Ræstingar við HSU boðnar út

Ríkiskaup, fyrir hönd Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, kt. 6708042750, óska eftir tilboðum í ræstingu á húsnæði stofnunarinnar í Vestmannaeyjum og Selfossi. Þannig hefst frétt á vefnum útboðsvefur.is. Þar kemur einnig fram að útboðið hafi verið auglýst í Stjórnartíðindum ESB. Eyjafréttir fjölluðu um þessi mál í vor fyrst um áformaðar uppsagnir ræstingarfólks og hörð viðbrögð bæjarráðs og verkalýðsfélaga. […]
Mikil eftirspurn eftir síldarhrognum

Spurn eftir síldarhrognum frá Noregi hefur verið meiri í ár heldur en nokkru sinni áður og verðið hefur hækkað í samræmi við eftirspurnina. Ástæða þessa er einkum talinn skortur á loðnuhrognum, en ekkert hefur verið veitt af loðnu við Ísland í ár og í fyrra og sömu sögu er að segja úr Barentshafi. Síldarhrognin eru […]
Lóðsinn aðstoðaði Drangavík til hafnar

Bilun kom upp um borð í togaranum Drangavík VE þegar skipið var á veiðum austur í Breiðamerkurdýpi í morgunn. „Þetta er bilun í skiptiskrúfunni sem veldur því að það er ekki hægt að minnka skrúfuskurðinn. Skipið keyrði fyrir eigin afli til Eyja en það þótti ráðlegt að kúpla frá við Bjarnarey og láta lóðsinn draga […]
Sea Life Trust óskar eftir sjálfboðaliðum

„Við erum í þeirri erfiðu stöðu að við erum með 35 lundapysjur sem ekki náðu því að verða vatnsheldar nægilega snemma til að hægt væri að sleppa þeim lausum í haust. Hvorki höfnin eða Vestmannaeyjabær sjá sér fært að aðstoða okkur með þetta yfir veturinn og því leitum við til sjálfboðaliða til að aðstoða okkur,“ […]
Brexit hefur áhrif á deilistofna

Útganga Breta úr Evrópusambandinu um áramót hefur haft mikil áhrif á strandríkjafundum haustsins um stjórnun veiða úr deilistofnum, en þar hafa Bretar tekið sæti sem sjálfstætt strandríki. Niðurstaða náðist ekki á fundi um makríl og verður fundað á ný ekki síðar en 25. nóvember. Varðandi norsk-íslenska síld var ákveðið að setjast niður í janúar til […]