Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór bætist í hóp þeirra sem fram kemur á Þjóðhátíðinni í ár.
Friðrik Dór hefur lengi verið einn af vinsælustu popptónlistarmönnum landsins. Hann hefur áður komið fram á Þjóðhátíð og þekkir því vel til. Friðrik og Jón bróðir hans eiga einmitt Þjóðhátíðarlagið frá 2018 ,,Á sama tíma á sama stað”
Undirbúningur fyrir hátíðina er í fullum gangi og verður spennandi að sjá hvaða fleiri listamenn bætast í hópinn á næstu vikum.