Íris bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins
Íris Róbertsdóttir. Mynd/aðsend.

Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum óskuðu eftir því við Írisi Róbertsdóttur að hún verði bæjarstjóraefni flokksins fyrir komandi sveitastjórnarkosningar þann 16. maí. Íris samþykkti beiðnina, en hún hefur gegnt starfi bæjarstjóra í Vestmannaeyjum undanfarin átta ár. Þetta segir í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum í Vestmannaeyjum.

Íris segir á facebook-síðu sinni að hún hafi ákveðið að verða við þeirri ósk Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum að vera bæjarstjóraefni flokksins í kosningunum í næsta mánuði.

„Þessa ákvörðun tek ég ekki síst vegna þess að ég hef átt gott og traust samstarf við oddvita flokksins og sömuleiðis hefur verið gott samstarf í nefndum og ráðum allt síðasta kjörtímabil. Ég er þakklát frambjóðendum flokksins fyrir að sýna mér þetta traust og vonast til að listinn fái sterkt umboð kjósenda í komandi kosningum. Þannig get ég áfram lagt mitt af mörkum með góðu fólki fyrir Vestmannaeyjar,” segir Íris.

Nýjustu fréttir

Ábending frá Herjólfi
ÍBV og Þór jöfn að stigum fyrir leik kvöldsins
Snorri Steinn velur landsliðshópinn fyrir undankeppni EM – Elliði Snær með
Breki VE tekur þátt í haustralli Hafró
Gul viðvörun fyrir allt landið á sunnudag
Áhyggjur af fjármögnun Herjólfs og Landeyjahafnar
Boða átak vegna gáma og númerslausra bíla
Tvær ferðir til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.