Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma

Laugardaginn 11. apríl nk. kl. 11.00–12.00 verður sjöundi þáttur af Vestmannaeyjum í gegnum linsu liðins tíma sýndur í Sagnheimum. Sem fyrr verður brugðið upp lifandi myndefni frá árunum 1950–1955, en einnig nokkru efni frá árunum 1960–1970. Um er að ræða efni sem Loftur Guðmundsson, Sveinn Ársælsson, Friðrik Jesson, Guðjón Ólafsson, Ósvald Knudsen og fleiri tóku upp.

Meðal efnis er koma erlends skemmtiferðaskips til Eyja og myndefni frá fermingu í Landakirkju árið 1954, þar sem fermingarbörn fædd árið 1940 og fjölskyldur þeirra koma við sögu. Einnig eru myndir frá frjálsum íþróttum og umferð bekkjabila á þjóðhátíð árið 1953, sem og mjög sjaldgæfar myndir úr vélasal Rafveitunnar við Heimatorg.

Vinna og veiðar bjargveiðimanna í Elliðaey, Bjarnarey, Álsey, Suðurey, Brandinum og Súlnaskeri eru fest á filmu og Gunnfaxi TF-ISB tekur á loft frá Eyjum með farþega á leið á Skógasand.

Þá er svipast um á Stórhöfða, þar sem Óskar í Höfðanum réði ríkjum í áratugi og sá um vitann, veðurmælingar og fuglamerkingar. Á undan sýningunni verður brugðið upp nokkrum gömlum myndum frá Eyjum sem hafa sögu að segja.

Eins og á fyrri sýningum stýrir Arnar Sigurmundsson umræðum. Gunnar Júlíusson, grafískur hönnuður, útbjó myndefnið til sýningar. Sýningin er styrkt af Uppbyggingarsjóði SASS. Þessar sýningar í Sagnheimum hafa verið mjög vel sóttar. Þrjú stór sjónvörp eru á staðnum, sem gerir upplifunina enn betri.

 

 

 

Nýjustu fréttir

Vöndum okkur! 
Ósigraðir Blikar koma til Eyja – ÍBV leitar að fyrsta sigrinum
Valur vann ÍBV í fyrsta leik í úrslitaeinvíginu
The Puffin Run fór fram í dag í blíðskaparveðri
Ástríðan fyrir trérennslu kviknaði í faraldrinum
Dýpkun gekk vel í morgun
Sjálfstæðisflokkur stærstur í Suðurkjördæmi
Góð stemning á fjölskyldudegi á Stakkagerðistúni
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.