Sjolag.is í stað veður- og ölduspár á netinu
Með uppfærslunni eru allar upplýsingar úr eldri veður- og sjólagkerfum nú sameinaðar í eitt samræmt og notendavænt viðmót.

„Sem vefstjóri hjá Vegagerðin langar mig að tilkynna að stofnunin hefur í dag tekið í notkun nýja og uppfærða útgáfu af vef sem veitir aðgang að öldu- og veðurspám fyrir sjófarendur,“ segir Eyjakonan Védís Guðmundsdóttir í tilkynningu sem hún sendi frá sér í dag. Í stað „ölduspár“ ber vefurinn nú heitið sjolag.is.

„Með uppfærslunni eru allar upplýsingar úr eldri veður- og sjólagkerfum nú sameinaðar í eitt samræmt og notendavænt viðmót. Kortið er orðið aðalinngangur notenda, sem einfaldar aðgengi að lykilgögnum og bætir yfirsýn,“ segir Védís.

Helstu nýjungar eru:

  • Stækkað spásvæði sem nær nú frá svæðum sunnan við Írland og norður í Barentshaf
  • Aðgreining á undiröldu og vindöldu, auk hefðbundinnar ölduspár
  • Ný kort sem sýna annars vegar sjávarhæð og hins vegar sjávarfallastrauma
  • Sjávarfallaspár miðast nú við sjókortanúll í stað meðalsjávarstöðu

Einnig hefur verið bætt við möguleika á að sækja eldri mæligögn úr ölduduflum, og stefnt er að því að bjóða upp á sambærilegan aðgang að spágögnum á næstunni.

Kortasjáin nýtir nýjustu og nákvæmustu ölduspár í hárri upplausn, sem bætir spár sérstaklega nær landi og við mælipunkta.

Framsetning gagna hefur verið einfölduð og bætt með því að sameina myndræna framsetningu og töflur. Þannig geta notendur bæði fengið skýra yfirsýn og nálgast nákvæmar tölulegar upplýsingar eftir þörfum.

Jafnframt hefur framsetning sveiflutíma verið uppfærð. Nú er sýndur sveiflutími orkutopps (Tp) í stað meðalsveiflutíma (Tm), sem gefur raunsærri mynd af áhrifamestu öldum hverju sinni og er gagnlegra við mat á sjólagi, siglingum og áhrifum á mannvirki.

Sjolag.is er ætlað að þjóna bæði almennum notendum og sérfræðingum með áreiðanlegum og aðgengilegum upplýsingum um aðstæður á sjó: https://sjolag.is/

 

Nýjustu fréttir

Álfsnes, kjarnaborun og höfnin
Vestmannaeyjar, eyjan okkar
Dýpkun gengur hægt – betri horfur síðar í vikunni
Spurt og svarað: Arndís María frá Eyjalistanum
Eitt tilboð í Gjábakkakant – samið niður eftir opnun
Frábæru Íslandsmóti í sveitakeppni í Boccia lokið
Átta dagar og engin svör frá ráðherrum
Dýpkun gekk illa í morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.