Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja – 201. fundur haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs, 7. mars 2017 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu:
Sigursveinn �?órðarson formaður, Jarl Sigurgeirsson aðalmaður, Sæbjörg Snædal Logadóttir aðalmaður, Sindri �?lafsson aðalmaður, Stefán �?skar Jónasson aðalmaður og �?lafur �?ór Snorrason framkvstj.sviðs.
Fundargerð ritaði: �?lafur �?ór Snorrason, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
Dagskrá:
1. 201610062 – Fráveita frá Botni að útrás Eiði
Fyrir lá verkfundagerð no.2 frá 23.febrúar 2017.
Ráðið samþykkir fyrirliggjandi verkfundagerð.
2. 200902056 – �?akleki íþróttahúsi
Stefán �? Jónasson óskar eftir umræðu um þakleka og ástand gólfdúks í í stóra sal Íþróttamiðstöðvar. Fram kom í máli framkvæmdstjóra að unnið hefur verið í því að kortleggja leka og húsið verið rannsakað. �?tlunin er að opna þak og veggi sumarið 2017 til að reyna að finna orsök lekans. Meðan leki er til staðar er ekki ráðlegt að fara í fjárfestingu á nýju gólfefni sem hugsanlega myndi liggja undir skemmdum.
3. 201606074 – Dalhraun 3 – Hraunbúðir viðbygging
Fyrir liggur verkfundagerð nr. frá 6 frá 14.febrúar og nr. 7 frá 28.febrúar 2017. Einnig lagðar fram hugmyndir vegna breytinga á hurðum og setustofu.
Ráðið samþykkir fyrirliggjandi fundargerðir.
4. 201703031 – Talstöð fyrir stjórnstöð Almannavarnanefndar.
Framkvæmdastjóri óskar eftir heimild til kaupa á TETRA borðstöð fyrir stjórnstöð Almannavarna. Núverndi stöð er ekki hæf til uppfærslu fyrir þau kerfi sem í notkun eru í dag. Kostnaður er áætlaður um 150 þús.kr. Ekki er gert ráð fyrir þessum kostnaði á fjárhagsáætlun 2017.
Ráðið samþykkir að kaupa nýja talstöð fyrir stjórnstöð almannavarna.
5. 201703030 – Kleifar 8. Umsókn um byggingarleyfi
Skipalyftan óskar eftir byggingarleyfi við Kleifar 8 skv. samþykktu deiliskipulagi. Erindi til kynningar.
6. 201703032 – Myndavélar á Sjóbúð
Arnór Arnósson fh. Björgunarfélags Vestmannaeyja óskar eftir leyfi til að setja eftirlitsmyndavélar á Sjóbúð Björgunarfélagsins til eftirlits með björgunarbátnum �?ór.
Ráðið heimilar Björgunarfélaginu að setja myndavélar á Sjóbúðina.