Fyllum Höllina af söng í kvöld
Vinir og vandamenn.

Eins og fram hefur komið halda Vinir og vandamenn þátttökutónleika í Höllinni í kvöld, þann 4. júlí og þar ætla þeir ekki aðeins að flytja eldri Eyjalög heldur verða einnig frumflutt tvö ný, sem bæði krefjast virkrar þátttöku áhorfenda. Það fyrra heitir, „Kappar þrír“ og er fjögurra erinda hetjukvæði eftir Leif Geir Hafsteinsson um þá Oddgeir Kristjánsson, Árna úr Eyjum og Ása í Bæ. 

„Við erum mætt á Eyjuna fögru og hlökkum mikið til kvöldsins,“ sagði Leifur Geir Hafsteinsson, einn Vina og vandamanna. „Að baki liggur mikil vinna, þrotlausar æfingar og ég get lofað flottum tónleikum. Það gefur okkur líka aukinn kraft að koma til Eyja og upplifa stemninguna á þeim tímamótum sem Goslok eru. Við köllum þetta þátttökutónleika því þegar fjórir eða fleiri Eyjamenn koma saman er alltaf stutt í sönginn. Við vonumst til á sjá sem flesta og saman fyllum við Höllina af söng í kvöld,“ sagði Leifur Geir. 

Með fréttinni fylgir myndband Vina og vandamanna af laginu “Við dýrkum Eyjar” sem frumflutt verður á tónleikunum í kvöld. 

Liðsmenn lýsa tónlistarstefnunni sem Eyja-kántrý-gospeli og textinn, sem Leifur Geir semur, er hálfgerð trúarjátning til Eyjanna og þeirra undursamlegu tilfinninga sem vakna þegar mætt er á Eyjuna fögru.  

Nýjustu fréttir

Ófært til lands – uppfært
Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló
Bíða enn eftir alvöru vertíðarstemmningu
Ferðaþjónustan er öflug atvinnugrein sem þarf tryggar samgöngur
Gul viðvörun á Suðurlandi: Búist við þrumuveðri
Evrópudagur talþjálfunar er í dag
Forsala á Þjóðhátíð 2026 hafin
Hitastig sjávar að vetri aldrei verið hærra
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.