Í dag sunnudag kl. 17:00 í Íþróttamiðstöðinni leika ÍBV strákarnir sinn fyrsta evrópuleik á tímabilinu.
Mótherjarnir eru hið fyrnasterka lið PAUC frá Frakklandi en þjálfarinn þeirra er hin margreindi Jerome Fernandez sem spilaði meðal annars hjá Barcelona, Ciudad Real og Montpellier auk þess að vera fyrirliði Franska landsliðsins til margra ára.Það er ljóst að þetta verður gríðarlega erfiður leikur enda um að ræða eitt sterkasta félagslið sem komið hefur til Eyja.
Helgina á eftir haldastrákarnir svo til Frakklands og spila á móti þeim á sterkum heimavelli í höll sem tekur 6000 manns. Góð úrslit hér heima eru því gríðarlega mikilvæg.
Á facebook síðu handboltans biðla strákarnir því til Eyjamanna að fjölmenna. „Strákarnir biðla því til ykkar að mæta á völlinn og sýna þeim hvernig alvöru Eyjastemninu eins og hún gerist best, þegar það smellur hjá okkur þá er ekkert lið sem á betri stuðningsmenn en ÍBV.”
Seldar verða pizzur frá 900 Grillhús í hálfleik og boðið upp á barnapössun á meðan leiknum stendur.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.