Fyrsti makríll vertíðarinnar kominn í hús
Huginn VE leggur að bryggju í Eyjum í morgun. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

Fyrsti makríll vertíðarinnar kom í hús Vinnslustöðvarinnar í morgun þegar Huginn VE kom til Eyja með rúmlega 1000 tonn. Aflinn var aðeins blandaður og var um 80% makríll. Fékkst megnið af honum í Smugunni en á heimleiðinni fengust um 200 tonn af hreinum makríl í íslensku lögsögunni.

Fram kemur á vefsíðu Vinnslustöðvarinnar að gæði makrílsins séu misjöfn, en elsti makríllinn er tæplega viku gamall. Starfsfólk Vinnslustöðvarinnar reynir nú að koma sem mestum hluta aflans í frystingu og hámarka þannig verðmæti hans.

Af öðrum skipum á miðunum er það að frétta að Gullberg og Sighvatur Bjarnason eru nú við veiðar SA af landinu. Lítill kraftur er í veiðunum, bara svona rjátl. Myndband frá komu Hugins til Eyja má sjá hér að neðan. Halldór B. Halldórsson annaðist upptöku og myndvinnslu.

Play Video

Nýjustu fréttir

Bilun í Herjólfi – sérfræðingur kallaður til frá Noregi
Landfylling við Eiði: Samið við Þjótanda um fyrstu áfanga
Spurt og svarað: Ármann Halldór frá Sjálfstæðisflokknum
Arnar kom íslenska landsliðinu á EM 2026
ÍBV og FH skildu jöfn á Hásteinsvelli
Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári
Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatíma
Spurt og svarað: Guðni Hjöll frá Miðflokknum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.