Jóhann Guðjónsson, fyrrum skipstjóri á �?risti VE með meiru er mikill áhugamaður um náttúruna og allt sem að henni lítur. Meðal annars fylgist hann vel með komu farfugla og í dag kom hann á ritstjórn Eyjafrétta og sagði að tjaldurinn sé kominn.
�??Já, tjaldurinn er kominn og er yfirleitt að koma á þessum tima nema í fyrra var hann óvenju snemma,�?? sagði Jóhann. �??�?að gleður marga að sjá tjaldinn sem er með fyrstu vorboðunum og er alltaf fallegur með sitt rauða nef. �?g sá hann í fjörunni við syðri hafnargarð,�?? bætti Jóhann við.