Góðborgari einn sendi okkur þessar myndir af gæsum, sem hann rakst á í kvöld, – i annað sinn á jafnmörgum vikum. �?ær eru þrjár og í bæði skiptin rakst hann á þær á sömu torfunni við Hamarsveg, ofan við flötina á þriðju braut á golfvellinum. Líklega eru þetta grágæsir. Á vísindavefnum segir: �??Á haustin safnast gæsir saman í stóra hópa og hefja farflug suður á hlýrri svæði. �?essi flug gæsanna vekja iðulega mikla athygli þar sem þær mynda áberandi og sérkennilegar oddamyndaðar fylkingar utan skotfæris í háloftunum. Með oddafluginu draga gæsirnar úr loftmótstöðu á löngu flugi sínu yfir höf og lönd.” Alltaf er þó einhver hópur sem hefur vetursetu á Íslandi.