Rauðagerði var reist að hluta til fyrir söfnunarfé er safnaðist í Vestmannaeyjasöfnun Rauða kross Íslands vegna eldgossins á Heimaey 1973. Fyrsta skóflustungan var tekin í mars 1974 en húsnæðið var tekið í notkun í maí 1974. Rauðagerði verður á næstunni rifið og á lóðinni eiga að rísa íbúðarhús.