Íslenskur sjávarútvegur tekur hlutverk sitt alvarlega sem framleiðandi hágæða matvæla og ein af burðarstoðum efnahagslegrar hagsældar þjóðarinnar. Fyrirtæki innan vébanda Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) hafa nú sameinast um stefnu í samfélagsábyrgð, sem grundvallast á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Megináherslurnar lúta að umhverfismálum og nýsköpun. Ábyrg og góð umgengni um náttúruna er skilyrði fyrir því að fiskistofnar við Ísland verði áfram nýttir með sjálfbærum hætti. Umhverfismál skipa af þeim sökum stóran þátt í stefnunni. Mikið hefur áunnist í þeim efnum á umliðnum árum, en markmiðið er að gera enn betur.
Aðilum sem nýta sjávarauðlindina er falin mikil ábyrgð. Af þeim sökum vilja fyrirtæki innan vébanda SFS einnig leggja sitt af mörkum til að efla traust á atvinnugreininni og auka gagnsæi. Fyrirtæki sem undirrita stefnuna hyggjast því birta ófjárhagslegar upplýsingar um umhverfismál, félagslega þætti og stjórnarhætti, þar sem stuðst er við alþjóðlega viðurkennd viðmið. Þá er einnig stefnt að því að birta upplýsingar um skattspor, hvar skattar eru greiddir og viðskipti við tengda aðila.
Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri SFS: „Við hófum gerð samfélagsstefnu í fyrra og afraksturinn er kynntur núna. Við efndum til opinna funda og líflegra umræðna á meðal hagaðila sjávarútvegs, við héldum vinnustofu með stjórnendum fyrirtækja, við fórum umhverfis landið til að fjalla um og kynna samfélagsábyrgð fyrir félagsmönnum og fengum athugasemdir frá þeim og ábendingar. Þótt stefnan til framtíðar liggi fyrir, þá er vegferðin í raun að hefjast. Nú kemur það í hlut fyrirtækjanna að aðlaga starfsemina að stefnunni. Það þarf árvekni og reglubundna sjálfsskoðun í þeim efnum. En það hefur í gegnum árin sýnt sig að íslenskur sjávarútvegur er framsýnn, kvikur og sveigjanlegur. Ég á því ekki von á öðru en að þessi öflugu sjávarútvegsfyrirtæki okkar víðsvegar um landið muni taka verkefnið föstum tökum.“
Nánar um nýja samfélagsstefnu sjávarútvegsins: samfelag.sfs.is




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.